Silja vill kvikmynda Vetrarsól Auðar

Það fór vel á með þeim Silju, Úu og Auði.Það fór vel á með þeim Silju, Úu og Auði.„Þetta er á algjöru frumstigi. Nú er forhandritavinna í gangi þannig að þetta er eins stutt á veg komið og hægt er," segir Silja Hauksdóttir kvikmyndaleikstjóri. Í blíðviðrinu í sólríku porti Forlagsins á mánudag undirrituðu þær Silja, Auður Jónsdóttir rithöfundur og Hólmfríður Matthíasdóttir hjá réttindastofu Forlagsins viljayfirlýsingu þess efnis að Silja hyggist kvikmynda hina frábæru bók Auðar, Vetrarsól. Og jafnframt tryggir Silja sér réttinn til þess. Vetrarsól hefur hlotið frábærar viðtökur lesenda og gagnrýnenda og er einmitt að koma út í kilju um þessar mundir.

Að sögn Silju er engin fjármögnun komin inn í verkefnið hvað þá að farið sé að huga að því hverjir muni leika þegar þar að kemur. Ekki einu sinni liggja fyrir hugmyndir um hvenær kvikmyndin mun birtast á hvíta tjaldinu. „Nei, nei, við vorum bara að ákveða þetta. Ég er byrjuð að vinna í handriti sem við Auður munum gera í samvinnu." Silja er nú að leggja lokahönd á nýja þáttaseríu sem heitir Ástríður en sýningar á henni munu hefjast á Stöð 2 í haust. „Það er nóg að gera. Ég kvarta ekki," segir Silja.- jbg

Sjá frétt á visir.is

Comments

Post new comment