Reply to comment

Vetrarsól - dómar

„ ... saga Auðar er einhver sú besta sem ég hef lesið þetta haustið ... Vetrarsól er samnefni að því leyti að sagan skín skært í skammdeginu. Frásagnarmátinn er einnig afar heillandi og stíllinn; ja, tja, hvað skal segja - dásamlegur!“
Eiríkur Bergmann / www.eirikur.eyjan.is
=> Sjá bloggfærslu Eiríks

„Þarna er grín og gleði ... ofboðslega gaman að lesa þetta ... skemmtilegasta bók Auðar.“
Gerður Kristný / Mannamál, Stöð 2

„Vetrarsól er athyglisverð formtilraun hjá Auði Jónsdóttur þar sem hún leikur sér með glæpasöguna …Frásögnin er mjög haglega byggð ... Vetrarsól er einföld saga á yfirborði en vefurinn að baki er flókinn og fíngerður og ekki vantar að höfundi tekst að skapa ósvikna krimmaspennu þegar líða tekur á ... Ég naut þess að fylgjast með afbragðsvel skapaðri aðalpersónu.“
Gauti Kristmannsson / Víðsjá
=> Sjá dóminn á heimasíðu RUV

„Auður er ein af mínum útvöldu. Ég held að hún sé að toppa sjálfan sig með þessari bók. Lesið Vetrarsól.“
Jenný Anna Baldursdóttir

„Þetta er mjög grípandi saga og allt í senn frumleg, yndisleg, spennandi og bráðfyndin ... góð uppbygging og frábær persónusköpun.
Vetrarsól er í hópi bestu bóka Auðar að mínu mati, ef ekki sú besta.“
Guðríður Haraldsdóttir / Vikan

„Auður byggir persónuna, drög hennar, af mikilli slægð og fer svo brátt að lesandinn fyllist óþoli hvernig Sunnu rekur áfram í nútíð og fortíð. ... Það er raunar ekki fyrr en á lokasíðum verksins að Auður dregur alla þræðina saman, rumpar þeim svo snögglega í vefinn og kemur hverjum fyrir í lyktum sem skilja lesandann eftir gapandi. ... Hugsunarlaus getur Auður Jónsdóttir ekki talist í sköpun sinni. Undirliggjandi í öllum hennar verkum er himinhá siðræn krafa sem verður logandi í huga lesandans. Það þarf snjalla byggingarhugsun til að ná því í gegn. Og allt sem á undan er gengið vísar til þeirrar niðurstöðu. Næstum að við verðum að byrja lesturinn að nýju. Þannig getum við fagnað tveimur glæsilegum skáldsögum frá þessum merkilegu höfundum. Ný verk þeirra beggja eru skyldulesning.“
* * * * stjörnur
Páll Baldvin Baldvinsson / Fréttablaðið

„Bókin kemur mjög á óvart ... Hún er mjög flinkur höfundur ... Þetta er fín bók hjá henni.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan, Rúv

„Skrifað af verulegri leikni, hún er mjög hugkvæmur höfundur og getur leikið sér með aðstæður og mál af mikilli list ... Þegar uppi er staðið leitar þessi saga talsvert mikið á mann, hún er býsna lúmskur höfundur ... Mjög fín bók.“
Páll Baldin Baldvinsson / Kiljan, Rúv

„...sagan er skemmtileg aflestrar, pínleg og leikandi til skiptis ... bráðskemmtileg bók sem þjónar hlutverki sínu sem ljós í myrkrinu dável.“
Úlfhildur Dagsdóttir / www.bokmenntir.is

„Kláraði Auði Jóns í gærkvöldi (nótt) og var yfir mig hrifin, engin leið að hætta.“
Gurrí Haraldsdóttir / www.dv.is/blogg/gurri

Reply