
Um Auði
Audur JonsdottirAuður Jónsdóttir er fædd 30. mars 1973. Hún starfar sem rithöfundur og sjálfstæður blaðamaður og hefur skrifað greinar og viðtöl fyrir ýmis tímarit og dagblöð. Smásaga hennar „Gifting“ birtist í tímaritinu Andblæ haustið 1997.
Auður hefur skrifað fjórar skáldsögur, Stjórnlaus lukka (1998), Annað líf (2000), Fólkið í kjallaranum (2004) og Tryggðarpantur (2006), og hún hefur einnig sent frá sér tvær barnabækur fyrir almennan markað, Algjört frelsi (2001) sem hún skrifaði í samvinnu við Þórarin Leifsson myndskreyti, og Skrýtnastur er maður sjálfur (2002), sem er ævisaga Halldórs Laxness fyrir börn. Sú bók hlaut viðurkenningu Upplýsingar, félags íslenskra bókasafnsfræðinga, sem vel unnið fræðirit fyrir börn og fyrir hana var Auður tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fræðirita og bóka almenns efnis.
Hún hefur einnig þrisvar verið tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki skáldverka, fyrir Stjórnlausa lukku, Fólkið í kjallaranum og nýjustu bók sína, Tryggðarpant, en verðlaunin hlaut hún 2004 fyrir Fólkið í kjallaranum. Fyrir þá bók var hún einnig tilnefnd af Íslands hálfu til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2006 og bókin hlaut afar góðar viðtökur í Danmörku þegar hún kom út þar haustið 2006.