Reply to comment
Vetrasól gefin út í Þýsklalandi
Nýútkomin bók Auðar Jónsdóttur, Vetrarsól, vakti mikla athygli erlendra bókaútgefanda á kaupstefnunni í Frankfurt í síðasta mánuði. Einkum sýndu Þjóðverjar gífurlegan áhuga, enda verður Ísland heiðursgestur á kaupstefnunni árið 2011. Tilboðum í útgáfuréttinn rigndi inn frá Þýskalandi þegar eftir sýninguna og að lokum varð að efna til uppboðs. Eftir töluverðar sviptingar var það risinn Random House sem hreppti hnossið. Hyggjast þeir gefa bókina út og dreifa í Þýskalandi, Austurríki og Sviss strax á næsta ári.
Sjá einnig umfjöllun á Visir.is
Verlagsgruppe Random House er næst stærsta forlag þýskalands, samkvæmt útlistun Wikipedia.
Vetrarsól er nýkomin út hjá Forlaginu og hefur hlotið góðar viðtökur gagnrýnanda fyrir óvæntan söguþráð og frumlega sýn á tilveruna. Í bókinni teflir Auður Jónsdóttir saman ólíkum heimum og varpar fram spurningum um lífsgildi, lífsviðhorf og lífsblekkingu .